Újé ... það eru núna meira enn tveir mánuðir síðan ég bloggaði síðast og er ég dottinn ofan í svipaðan pakka og venjulega. Enn i don't care. Nóg búið að gerast síðan síðast.
Búinn að vera að forrita kerfið Autonomy kerfið mitt síðustu mánuðina og gengur það bara mjög vel. Kerfið er í notkunn í ýmsum vefum og aðrir vefir hafa áhuga á að kaupa aðgang að því.
Átti mjög gott og skemmtilegt afmæli 28. október heima hjá mér og á Glaumbar. Mikið drukkið og mikið tjúttað. Svo hafa verið góð og skemmtileg djömm síðan þá og m.a. má nefna Úlfaldatúrinn sem var síðasta helgi og vá hvað það var skemmtileg ferð :)
Núna styttist í lokapróf og er maður byrjaður að læra á fullu fyrir þau. Próftaflan mín lítur svona út.
Miðvikudagur 6. desember - DAN202; 09.00
Miðvikudagur 6. desember - ENS403; 13.00
Miðvikudagur 6. desember - FÉL203; 15.00
Fimmtudagur 7. desember - STÆ122; 09.00
Fimmtudagur 7. desember - ÍSL403; 13.00
Fimmtudagur 7. desember - NÁT123; 13.00
Mánudagur 11. desember - ÍSL303; 09.00
Þriðjudagur 12. desember - SAG403; 11.00
14. nóvember 2006 klukkan 03:29
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Ég veit, ég veit ... ég hef ekki verið mikið að blogga síðustu vikurnar og dagana og ástæðurnar eru ekki margar. Hef samt lítinn sem engan áhuga að segja ykkur hvers vegna *burn*!
Nei oki ég vill nú ekki vera leiðinlegur. Í raun veit ég ekki hvers vegna ég hef ekki skrifað neitt síðan síðasta færslan kom inn á þennan stórglæsilegan vef sem ég kalla eitthvað sem ég nenn ekki að skrifa. Æji oki sorry aftur, er alltaf að fara út fyrir efnið. Anyways eða á góða íslensku, allavega, þá hefur nú ekkert mjög markvert gerst síðastu vikur og daga. Skólinn er hafin á ný og kominn vel áleiðis. Nú er bara að taka þetta með trukki og reyna að fá eitthvað hærra enn 5 í einkunn, þótt ég tel það nú ekki mjög líklegt :P
Anyways þá er ég ennþá í Regnboganum og var að klára mína fyrstu vakt á skemmtistaðnum Belly's sem selur kalda og gómsæta drykki á gjafaverði. Þessi fyrsta vakt var bara þokkaleg og næst á ég að mæta á sunnudaginn.
Í millitíðinni hefur verið stannslaus gleði og hamingja. Óteljandi drykkir hafa flætt inn um munopið á mér og hefur það yfirleitt fylgt mikil gleði og skemmtun. Ekki fær maður að slaka á í þeim málefnum, heldur á morgunn, laugardaginn 9. sept, ætlar Garðar okkar að halda kveðjupartý þar sem hann og nokkrir aðrir eru á leiðinni til Spánar að læra spænsku í nokkra mánuði, held samt að ferðin sé aðeins plönuð til þess að fylgja fótboltakappanum Eið Smára milli leikja og svona. Nei kannski er ég að bulla enn þetta hljómaði skemmtilega. Svo er í fréttum að helgin eftir þessa helgi, sem er næsta helgi *ó hvað ég er góður :D*, verður gleðikvöld í Hafnafirði hjá félögunum í kvikmyndahúsunum Regnboganum og Smárabíói. Það verður enn og aftur, enn meiri gleði og gaman. Helgin eftir næstu helgi, s.s. helgi plús tvær *I'm on fire!*, verður svo ég best viti afmælishelgi, sem minnir mig á það að frændi minn Siguróli hélt upp á afmælið sitt í kvöld og bauð ekki mér. He's so dead! >:(
Nei oki, bara smá samt.
Enn ég ætla að hætta að skrifa meiri vitleysu áður enn ég fer í shock og dey hræðilegum dauðdaga í blári powerade flösku . Oki fyrirgefið mér, ég er að reita af mér hrikalega brandara sem rekja má til svefnleysis, eða öðrum orðum, The all mighty SVEFNGALSI! :D:D:D:D HAPPY :D
Bless og bæ og segjum hæ,
Danni kveður eins og Klanni sem þarf Nammi :D:D:D *fyrirgefið mér aftur*
09. september 2006 klukkan 10:33
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Dagurinn getur varla orðið betri enn hann er. Sólin skín, smá rok til þess að hressa mann við og búinn að taka þrjú próf í dag. Nú heldur þú örugglega að ég sé að missa vitið því ég segi það sé góður dagur þegar maður er að eyða honum inni í kennslustofu. Nei í raun ekki því ég er búinn að standast tvo áfanga í dag. Fór í félagsfræði og sálfræði í morgunn og fékk úr prófinu bara nokkrum mínutum eftir ég gekk úr prófinu. Ég náði s.s. þessum áföngum :D Fékk kannski ekki hátt í áfanganum enn fékk þokkalega einkunn fyrir lokaprófin :D
Nú vantar mér bara að fá úr dönsku og sagnfræði. Á morgunn er það eðlis- og efnafræði og ætlar maður að ná því líka auðvitað :) Enn jæja best að slappa af í smá stund og halda svo áfram að læra eins og skeppna :)
Danni Happy :D
14. ágúst 2006 klukkan 21:00
Daníel Sigurður Eðvaldsson 3 athugasemdir
Shit ... hvað síðasta vika hefur verið mikið stress og vesen. Síðan ég kom heim frá eyjum er maður búinn að liggja í bókunum. Átti að fara í þrjú próf á miðvikdaginn enn svona treysti mér ekki í neitt nema sálfræðina. Þannig ég tek tvö próf á mánudaginn og eitt á þriðjudaginn.
Próftaflan mín er eða var svona: 09. ágúst - Sálfræði 10. ágúst - Sagnfræði 14. ágúst - Félagsfræði og Danska 15. ágúst - Eðlis- og efnafræði
Vá hvað þetta er búið að vera puð enn þetta er að vera búið :D Svo hefst skólinn á ný 22. ágúst. Enn svona er þetta.
Notaði helgina til þess að læra fyrir prófin og gengur bara þokkalega. Nema hvað á föstudagskvöldi var svona "finger food" partý hér heima með fullt af ljúfengum drykkjum og mat. Veislan var ekki lengi þannig ég, Kári og Pálmz kíktum í pool upp í lágmúla. Djöfull sökkaði ég! Tapaði öllum leikjum mínum :( Svo var hinsvegar ferðinni heitið á Belly's þar sem maður fékk sér einn ódýran öllara og fór svo bara heim að lúlla.
Svo á laugardagskvöldið vorum við hjá Júlla að sötra nokkra kalda og fórum svo niður í bæ. Þar skildust svo leiðir okkar þannig ég og Kári vorum einir og yfirgefnir á lækjatorgi. Hinsvegar hittum við svo Sverrir og við röltum bara inn á Glaumbar og fengum okkur í glas. Kári var svo ráðinn í gæslustörf fyrir vinkonu sína og ég og Sverrir kíktum áfram á Sólon. Svo þegar við vorum aftur búinn að hitta Káraling töltum við um bæinn og fundum svona skrautlega fullt fólk sofandi á ýmislegum stöðum bæjarinnar.
Þessi partý dýr sváfu inn bílnum með einhverja funk popp musík í botni :P
Æji, þetta var skemmtileg helgi. Núna ætla ég að detta í félagsfræðina að krafti og segi bara bless og bæ í bili. The Danster ;)
13. ágúst 2006 klukkan 19:46
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Nú er maður nokkurnveigin nývaknaður eftir fyrsta almennilegan svefn síðan fimmtudagsnóttina. Vá hvað ég svaf vel. Enn eins og flestir vita þá náttúrulega fór ég á Þjóðhátíð í Eyjum og skemmti mér konunlega. Þetta var svo ótrúlega skemmtileg hátíð. Reyndar smá rigning og ágætis rok á köflum enn samt kom sólin fram og gaf okkur hita :) Hinsvegar náði rokið og rigningin að yfirbuga sólina og var frekar hvasst á laugardaginn og fram á kvöld á sunnudeginum. Það mátti sjá tjöld og ýmislegur aukabúnaður fjúka út um allt tjaldsvæðið og alveg langt upp í brekku. Maður sá nokkur tjöld efst í brekkunni þegar maður skreið fram á sunnudeginum. Annars var þetta bara hið besta skemmtun. Bubbi var geggjaður og Todmobil voru einnig þrusugóðir. Tók einhverjar 300 myndir og brot af því besta er á rugl.is. Tjékk it out ;) ;)
Ég og Kári náðum að fara með 15:20 vélinni í gær enn áttum bókað kl 19:20. Þannig náðum vel að komast heim í glæný föt og ógeðslega góða sturtu :D Hinsvegar þegar maður kom heim og kveikti á tölvunni sá maður að það verið að leita af manni í Skaftafelli. Auðvitað kíkti maður inn á aðgerðagrunninn og sá þar að einhverjar sveitir af höfuðborgasvæðinu eru í viðbragðstöðu. Svo kom bíbið rétt fyrir klukkan níu. Vá hvað það var geggjað að vera kominn heim og strax út í útkall. Kvöldið, eða frekar sagt nóttin, endaði þannig að ég svaf í sófanum upp í hjálparsveit til kl átta í morgunn. Þá var líka nýbúið að finna hann. Svo bara kom ég heim og lagðist upp í rúm og tók gott Power Nap sem varð svo til rétt rúmlega fjögur. Þannig ég er nývaknaður eftir æðislega þjóðhátíð og skemmtilegt útkall svona í enda helgarinnar :)
Enn ég ætla að kveðja í bili og læra undir sálfræðina sem er á morgunn kl eitt :)
ble!
08. ágúst 2006 klukkan 22:02
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Ágúst mánuðurinn byrjar alveg hrikalega vel með sól og hita og ég auðvitað peninga :P Enn núna er ég á meðan það er hrikalega mikil sól inni að lesa andskotans sögu, efna- og eðlisfræði. Gettur ekki verið skemmtilegra!
Best að halda áfram að læra þetta helvíti ;)
Enn svona rétt í lokin, farið vel með ykkur um helgina og ekki enda eins og þessi frændi hérna ;)
See you later aligator :Ð
02. ágúst 2006 klukkan 20:21
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Eins og titillinn á þessari færslu gefur til kynna, þá fór ég í gær á Sigur Rós tónleikana á Klambratúni. Djöfull var þetta geggjaðir tónleikar :D Tár og alles! Nei oki ekkert tár, enn samt geggjaðir. Sérstaklega fyrir Sigur Rós aðdáenda :D
Enn núna er að skella á ein stærsta djamm helgi sumarsinns, Verslunarmannahelgin :D Núna á þetta að vera fríhelgi verslunarmanna þar sem þeir ættu að vera í góðu tjilli með öl og slappa af, enn nánast þau einu sem vinna eru verslunarmenn. Irony!
Enn neinei. Í ár (eins og síðustu tvö ár) ætla ég að skella mér til Eyja, og nei ég er ekki að fara í gæslu!, með flokk af fólki sem ætlar að djamma og djúsa fram á rauða nótt og kannski, hver veit, langt fram eftir deginum. Hann Haraldur okkar Ruglari er með þessa fínu blogg síðu tileinkuð Þjóðhátíð í eyjum. Flestir fara á miðviludag eða fimmtudag enn ég og Káralingur erum svo f***ings snobbaðir og tökuð auðvitað first class flug til Alþjóðaflugvallarinns í Vestmannaeyjum á föstudaginn. Djöfull verður þetta mikil stemmning :D
Sjáumst hress og kát í Eyjum um Versló ;)
Mr. Edvaldsson kveður í bili.
31. júlí 2006 klukkan 20:48
Daníel Sigurður Eðvaldsson 1 athugasemd
Trí tra tralla það er helgi. Helgin er alltaf svo skemmtileg. Síðustu helgar hjá mér hafa verið mjög auðveldar. Aðalega bara læra, vinna, djamma langt fram á nótt og alles. Bara njóta sumarsinns til hins ýtrasta.
Síðan ég bloggaði síðast hefur nú ekki mikið gerst hjá mér. Í raun man ég bara ekki eftir neinu sérstöku. Hinsvegar á föstudaginn fer ég til Eyja og verð þar fram á mánudag í góðum gír.
Jæja þá, ég ætla að halda áfram að klára að læra undir söguprófið.
29. júlí 2006 klukkan 21:49
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd
Síðasta vika hefur verið brjáluð hjá mér. Búinn að fara yfir svona 500 bls af lærdómi allt í allt og nóg eftir að gera :S Ekki létt að vera í 17 eininga fjarnámi.
Enn fyrir utan námið hef ég aðalega verið að vinna í bíóinu, skemmt mér svona þokkalega á þessum síðustu dögum mánaðarinns. Hef aðalega verið að horfa á bíómyndir og flestar góðar eða allavega betri enn ég bjóst við.
Fór nokkrum sinnum í bío og sá þá Take the lead, Click, Just My Luck, Da Vinci Code og já bara það :P Fór ekki með neinar væntingar á fyrstu þrjár myndirnar og þær komu mér frekar á óvart. Bjóst nú bara við sull og viðbjóði enn svo varð ekki :)
Talaði mig til og horfði á Hostel svona rétt fyrir svefninn um daginn. Aftur, bjóst ég við mun ógeðslegri mynd enn svo var nú ekki alveg. Jújú, hún var þokkalega ógeðsleg svona sum atriði enn hevíti góð.
Um helgina ætlar maður á Snæfelsnesið og skella sér á Færeyska daga á Ólafsvík. Vonandi verður veðrið aðeins betri enn síðast :)
Enn þangað til næst, Danni kvikmyndanörd!
30. júní 2006 klukkan 08:31
Daníel Sigurður Eðvaldsson 2 athugasemdir
Já eins og fyrirsögnin segir svo skemmtilega þá er ég núna kominn með hálsbólgu og öllu því sem henni fylgir eftir síðasta ævintýri autur á Kirkjubæjarklaustri nú um síðustu helgi. Æðislegt segi ég nú bara, ekki alveg í stemmara fyrir veikindum enn og aftur.
Enn það sem gerðist í mínum heimi í dag var ýmilegt enn samt ekki margt :(. Skellti mér í vinnuna eins og alltaf og kom heim frekar snemma í þetta sinn, át dýrmætis grillmat og hélt áfram að læra eins og hvert einsasta kvöld. Hinsvegar var ég ekki alveg í stemmara að læra þegar leið á kvöldið og heldur ekki svefn, þannig ég skellt mér á "Take the lead" myndina með hjartaknúsaranum Antonio Banderas. Verð að viðurkenna það að myndin kom mér á óvart. Bjóst nú bara við algjöru floppi reyndar fyrst enn eftir því sem meira var búið af henni líkaði mér hún meira. Í þessari mynd leikur hann Danskennara sem ákveður einn daginn að kenna hópi af vandræða unglingum að dansa samkvæmisdans í eftirsetutíma. Mæli alveg með henni :)
Ég nýtti mér myndaalbúmið á blogginu í fyrsta sinn og setti inn nokkrar myndir af littla bróðir. Take a look ;)
Kveð í bili
Daníelsan
23. júní 2006 klukkan 06:21
Daníel Sigurður Eðvaldsson Engin athugasemd